24.2.2007 | 10:26
Bráðum orðin 1. árs
Þá fer að koma að fyrsta afmælisdeginum, 25. febrúar! Góa er mjög spennt orðin fyrir 1. árs afmælinu sínu og mamman í nettu stressi að klára baksturinn og annan undirbúning ![]()
Góa er annars nýstigin upp úr veikindum, fékk leiðindar RS-vírus sem var að ganga hjá dagmömmunni og eyrnabólgu út frá því. Hún hresstist samt fljótlega eftir að hún fékk sýklalyf, en annað mál gilti um mömmuna og pabbann sem voru alveg að drepast úr kvefi og hálsbólgu í rúmar 2 vikur! Við vonum bara að veikindatímabilið sé að mestu yfirstaðið, enda finnst manni hálfpartinn vor vera í lofti þegar að daginn tekur að lengja svona og veðrið helst bjart og fallegt. Í gær var svo fallegur dagur að við Góa skemmtum okkur konunglega við að rölta út á róluvöll á Freyjugötu og Góu fannst alveg frábært að fá að róla smá þar.
P.S. Mér tókst að breyta stillingum á athugasemdunum þannig að ekki þarf að láta staðfesta netfangið sitt til að skrifa athugasemd. Endilega sem flestir þá að kommenta!!
17.12.2006 | 23:17
Loksins!
Loksins nennti mamma hennar Góu að uppfæra síðuna!
Það eru komnar nýjar myndir í myndaalbúm merkt nóvember og desember, ásamt því að það ætti að vera hægt að skoða tvö myndbönd af Góu hér á listanum vinstra megin. Á öðru myndbandinu sést skriðstíllinn flotti sem Góa beitir til að ferðast um. Hitt myndbandið var tekið þegar að Skúli, pabbi Góu, var að grínast með því að þeyta fötulokum út um allt og Góa hló þessum innilega hlátri sínum ![]()
Annars er allt mjög flott að frétta af okkur. Góa er nýbúin að fá sitt eigið herbergi, rosalega flott, og hún er alveg að fíla það í tætlur. Það var ekkert mál fyrir hana heldur að gista ein í nýja herberginu, annað en segja mátti um mömmu hennar sem vaknaði um miðja nótt og kíkti á hana bara til að vera viss að allt væri í lagi...sem það var auðvitað, Góa svaf bara alla nóttina í gegn
.
Hér má svo líka sjá myndböndin af henni Góu:
Svo lofum við að vera öflugar framvegis að skrifa hérna inn fréttir af Góu og setja inn myndir ![]()
9.10.2006 | 20:05
Afsakið hlé...
29.9.2006 | 12:17
Tönn og mótmæli
Jæja loksins kom að því. Fyrst tönnin er mætt á svæðið! Við héldum reyndar fyrst fyrir tveimur mánuðum síðan að þessi tönn væri að koma upp þar sem að gómurinn var doldið bólginn akkúrat þarna í neðri góm, hægra megin, ásamt því að Góa slefaði svo mikið...Það reyndist nú hins vegar ekki rétt hjá hvorki okkur né vinum og vandamönnum sem sögðu okkur að þá væri að koma tönn! Nú hins vegar er hún búin að brjótast í gegn og allir mjög-mjög montnir yfir þessu hér á heimilinu :) Það verður því keyptur tannbursti í dag.
Góa er annars mjög hress að vanda. Stundum of hress að mati foreldrana þegar hún tekur upp á því að vakna kl 5-6 á morgnana og heimta alls konar þjónustu og skemmtiatriði. Við erum hins vegar að reyna eins og við getum að venja þetta af henni og fá hana til að sofa betur, en við pöntuðum síðan tíma hjá svefnráðgjafa sem vonandi á eftir að geta gefið okkur góð ráð!
Góa fór síðan í sína fyrstu mótmælagöngu um daginn með ömmu sinni Theódóru. Foreldrarnir skelltu sér á tónleika með Hljómeyki, kórnum hans pabba (pabbinn var veikur og því ekki að syngja með, en fór í staðinn að horfa á :)), en á meðan fór Góa með ömmu sinni í Ómars-gönguna niður Laugaveginn að mótmæla Kárahnjúkavirkjun.

Þessi mynd er reyndar ekki tekin við það tækifæri, en það má alveg ímynda sér að stemmningin hafi verið svipuð enda finnst Góu fátt skemmtilegra en að fara út í vagninum :)
Svo fattaði mamman nú ekki þegar ég opnaði þetta blogg fyrir Góu, að það væri svona mikið vesen að skrifa athugasemndir á það eða í Gestabókina... Við vorum hins vegar að einhverjir nenni að standa í veseninu sem fylgir því að skrifa athugasemndir, en það er svo gaman að fá að heyra frá þeim sem lesa bloggið!
26.9.2006 | 13:18
Myndir
Við Góa ætlum að reyna að vera duglegar að setja alltaf reglulega inn myndir hérna í myndaalbúmin til hliðar. Hins vegar er mamman ekki að nenna að setja inn allar gömlu myndirnar, þannig að við bendum fólki á að þær eru á þessum slóðum:
http://public.fotki.com/gubjug - Nýfædd og fyrstu mánuðirnir
http://public.fotki.com/gubjug2 - Sumarið
![]()
26.9.2006 | 00:29
Góa Kolbrún fékk sér blogg

Það kom að því að Góa Kolbrún færi nú loks að blogga. Nú er stelpan orðin nógu stór til að geta setið sjálf og barið á lyklaborð. Lyklaborð er nefnilega eitthvað sem Góu finnst ægilega spennandi, enda svipar það á einhvern hátt til píanónótna sem hún fær reglulega að lemja á hérna heima hjá sér eða hjá ömmu sinni Theódóru. Góa ætlar nefnilega að verða píanósnillingur og söngkona þegar hún er orðin stór - það segir hún núna að minnsta kosti, gæti vel verið kappaksturskona á morgun.
Um bloggið
Góa Kolbrún Mechiat
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.2.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 3265
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

annasig
drifafraenka
kristinalma
thorstt








