Bráðum orðin 1. árs

Þá fer að koma að fyrsta afmælisdeginum, 25. febrúar! Góa er mjög spennt orðin fyrir 1. árs afmælinu sínu og mamman í nettu stressi að klára baksturinn og annan undirbúning Wizard

 

Góa er annars nýstigin upp úr veikindum, fékk leiðindar RS-vírus sem var að ganga hjá dagmömmunni og eyrnabólgu út frá því. Hún hresstist samt fljótlega eftir að hún fékk sýklalyf, en annað mál gilti um mömmuna og pabbann sem voru alveg að drepast úr kvefi og hálsbólgu í rúmar 2 vikur! Við vonum bara að veikindatímabilið sé að mestu yfirstaðið, enda finnst manni hálfpartinn vor vera í lofti þegar að daginn tekur að lengja svona og veðrið helst bjart og fallegt. Í gær var svo fallegur dagur að við Góa skemmtum okkur konunglega við að rölta út á róluvöll á Freyjugötu og Góu fannst alveg frábært að fá að róla smá þar.

Ánægð með róluna

Góa að róla

Róli-Róli

Mæðgur í sólinni

P.S. Mér tókst að breyta stillingum á athugasemdunum þannig að ekki þarf að láta staðfesta netfangið sitt til að skrifa athugasemd. Endilega sem flestir þá að kommenta!!


« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 identicon

Til lukku með daginn Góa! :)

Sigga (IP-tala skráð) 25.2.2007 kl. 09:21

2 identicon

Til hamingju með afmælið elsku Góa:)  húrra húrra húrraaaaaaa... Kveðja Mikolas Bergþór og Ása

Ása og Mikolas Bergþór (IP-tala skráð) 25.2.2007 kl. 13:53

3 identicon

Innilega til hamingju með fyrsta afmælið skvísa! :)

Kv. Oddný og Lára Bryndís

Oddný Ósk (IP-tala skráð) 25.2.2007 kl. 21:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Góa Kolbrún Mechiat

Höfundur

Góa Kolbrún Mechiat
Góa Kolbrún Mechiat
Góa Kolbrún Mechiat er snilldarmanneskja, falleg, gáfuð og húmoristi, fædd 25. febrúar 2006.
Maí 2012
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • Mæðgur í sólinni
  • Góa að róla
  • PC270028
  • PC180002
  • laga betur2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 0
  • Sl. viku: 0
  • Frá upphafi: 3366

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 0
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband